Yfirlit yfir veðrið frá veðurstöðinni í Litlu-Ávík

Reykjaneshyrna. Mynd: Jón G. Guðjónsson.

Jón G. Guðjónsson, veðurathugunarmaður í Litlu-Ávík í Árneshreppi hefur birt veðuryfirlit fyrir nóvember, sem var harla fjölbreytilegur: „Fyrstu fjóra daga mánaðar voru norðlægar vindáttir með slyddu, frostrigningu og síðan éljum. Þann 5. var hæg breytileg vindátt, með éljum. Þann 6. og 7. var norðaustan hvassviðri, og hlýnaði í veðri. Síðan 8. og 9. voru breytilegar vindáttir og hægviðri. Þá gerði norðaustan 10 til 16 metra með kólnandi veðri, með rigningu og síðan slyddu. Þann 17. og 18. voru suðlægar vindáttir með hlýju veðri sérstaklega um morguninn þann 17. þegar hiti fór í 15 stig. Frá 19. til 26. var hægviðri með lítilsáttar úrkomu með köflum, en svölu veðri. Þá gekk í norðaustanátt þann 27. og var NA út mánuðinn með hvassviðri og snjókomu.

Úrkomusamt var fyrri hluta mánaðar eða framyfir miðjan mánuð.

Mæligögn:

Úrkoman mældist 95,5 mm. (í nóvember 2017: 72,0 mm.)

Úrkomu sem varð vart en mældist ekki var í 1 dag.

Þurrir dagar voru 7.

Mestur hiti mældist þann 17: +15,0 stig.

Mest frost mældist þann 26: -3,5 stig.

Meðalhiti mánaðarins var? (í nóvember 2017: +0,7 stig. )

Meðalhiti við jörð var +0,55 stig. (í nóvember 2017: -3,32 stig.)

Alhvít jörð var í 3 daga.

Flekkótt jörð var í 4 daga.

Auð jörð var því í 23 daga.

Sjóveður: Mjög gott eða sæmilegt, gráð, sjólítið, dálitill sjór 17 til 27. annars mjög rysjótt.

Yfirlit dagar eða vikur:

1-4: Norðaustan og N gola, stinningsgola, kaldi, allhvass, slydda, slyddu eða snjóél, frostrigning, hiti -1 til 4 stig.

5: Breytileg vindátt með kuli, snjóél um morguninn, hiti -3 til 2 stig.

6-7: Austnorðaustan, eða NA stinningskaldi, allhvass, hvassviðri, þurrt þ.6. síðan rigning, hiti 2 til 6 stig.

8-9: Breytilegar vindáttir, andvari, kul eða gola, rigning, en þurrt þ.9. hiti 2 til 7 stig.

10-16: Norðaustan allhvasst, stinningskaldi, kaldi, stinningsgola, rigning, súld, slydda, hiti 1 til 6 stig.

17-18: Suðlægar vindáttir, SA, S, SSV, stinningsgola, kaldi, allhvass, síðan gola, rigning, hiti 4 til 15 stig.

19-26: Breytilegar vindáttir, andvari eða kul, þoka, súld, rigning, þurrt dagana 22, 23, 24, 26, hiti -4 til 6 stig.

27-30: Norðaustan og NNA stinningsgola, kaldi, stinningskaldi, síðan hvassviðri, þurrt í veðri þ. 27. síðan él og snjókoma, hiti frá 4 og niður í -2 stig.

Tekið saman af Jóni G Guðjónssyni veðurathugunarmanni í Litlu-Ávík.

Sæbjörg

sfg@bb.is

DEILA