Hið árlega Sambíómót íþróttafélagsins Fjölnis í Grafarvogi fór fram um síðustu helgi. Líkt og fjölmörg undanfarin ár fjölmenntu ísfirskir körfuboltakrakkar á mótið undir merkjum Körfuknattleiksdeildar Vestra eins og sagt er frá á heimasíðu félagsins. Alls tóku um 30 Vestrakrakkar á aldrinum 6-9 ára þátt í mótinu í ár og hafa þeir sjaldan verið fleiri. Ætla má að yfir 700 þátttakendur hafi verið skráðir til keppni en leikið var í þremur íþróttahúsum hverfisins; í Dalhúsum, Rimaskóla og Fjölnishöllinni.
Keppt var í sex Vestraliðum undir stjórn þriggja þjálfara yngri flokka, þeirra Yngva Páls Gunnlaugssonar, Dagnýjar Finnbjörnsdóttur og Guðmundar Auðuns Gunnarssonar. Auk þeirra fylgdi stór hópur foreldra og annarra aðstandenda börnunum í mótið og hjálpaðist hópurinn að í umfangsmikilli dagskrá mótsins. Allir skemmtu sér hið besta en fyrir utan að spila fimm leiki hvert lið var keppendum boðið í pizzuveislu, bíó og á myndarlega Halloween kvöldvöku, sem fram fór í íþróttamiðstöðinni Dalhúsum á laugardagskvöld að aflokinni blysför keppenda.
Sýnilegar framfarir voru á milli leikja hjá öllum keppendum Vestra sem voru til mikillar fyrirmyndar á mótinu og félaginu sínu til sóma á allan hátt. Einn þjálfari Vestra hafði á orði að mót af þessum tagi væri á við 20 æfingar. Á mótum læra iðkendur allt um umgjörð leikjanna og fá betri tilfinningu fyrir reglunum og íþróttinni almennt.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2018/11/Guðmundur-Auðunn-Gunnarsson-með-elstu-Vestrastelpurnar-á-mótinu-300x225.jpg)
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2018/11/Guðmundur-Auðunn-Gunnarsson-með-næstelstu-Vestrastelpurnar-á-mótinu-300x225.jpg)
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2018/11/Yngvi-Páll-Gunnlaugsson-með-hinn-eldri-strákahópinn-300x225.jpg)
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2018/11/Yngvi-þjálfari-með-annað-af-tveimur-strákaliðum-í-eldri-hópnum-225x300.jpg)
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2018/11/Dagný-með-yngsta-strákahópinn-225x300.jpg)
Næsta stórmót þessa aldurshóps er hið margrómaða Nettómót í Reykjanesbæ sem fram fer fyrstu helgina í mars 2019.
Sæbjörg
sfg@bb.is