Tæplega 100 sýnendur koma saman á landbúnaðarsýningu í Laugardalshöll dagana 12. – 14. október. Núna eru 50 ár liðin frá því seinasta stóra landbúnaðarsýningin var haldin í Höllinni. Að sögn Ólafs M. Jóhannessonar framkvæmdastjóra sýningarinnar verður þetta stærsta landbúnaðarsýning sem haldin hefur verið í Höllinni og hafa þegar yfir 90 fyrirtæki pantað bása, bæði á úti- og innisvæði. Að sögn Ólafs kom mest á óvart hversu fjölbreyttur landbúnaður er stundaður á Íslandi: „Það eru ekki bara okkar fjölbreyttu og hreinu matvæli sem streyma frá bændum heldur stunda þeir ferðaþjónustu í æ meira mæli og líka skógrækt, orkuframleiðslu og hvers kyns heimilisiðnað og allt verður þetta kynnt á sýningunni. Meðal fyrirlesarar verða tveir Vestfirðingar. Birkir Þór Guðmundsson frá Ingjaldssandi, framkvæmdastjóri AB fasteigna fjallar um smávirkjanir og Súgfirðingurinn Eyþór Eðvarðsson, stjórnarformaður Votlendissjóðsins flytur erindi um verkefni sjóðsins.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2018/10/islenskur_landbunadur_fyrirlesarar-212x300.jpg)
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2018/10/islenskur_landbunadur_web3-1-207x300.jpg)
Opið frá föstudegi til sunnudags
Sýningin hefst með opnunarhófi kl. 13.00 föstudaginn 12. okt. Þann dag er opnunartími 14.00–19.00, á laugardag 13. okt. 10.00–18.00 og sunnudag 14. okt. 10.00–17.00. Miðar gilda alla helgina en miðaverð er kr. 1.000 og frítt fyrir aldraða, öryrkja, námsmenn og börn yngri en 12 ára í fylgd með fullorðnum. Félagsmenn í Bændasamtökum Íslands fá senda boðsmiða á sýninguna sem gilda alla sýningardagana.