Yfirlýsing frá Vesturbyggð og Tálknafjarðarhrepp vegna viðtals við Óttar Yngvason á RÚV í gær, laugardag , þar sem fullyrt var að aðeins 5 – 10 manns á Patreksfirði ynnu við fiskeldis og kannski 25 manns á Bíldudal.
„Bæjarstjóri Vesturbyggðar, Rebekka Hilmarsdóttir og oddviti Tálknafjarðarhrepps, Bjarnveig Guðbrandsdóttir, gera alvarlegar athugasemdir við fréttaflutting Ríkisútvarpsins um eldi í Patreksfirði og Tálknafiði, þar sem fullyrt er í frétt á vef Ríkisútvarpsins að aðeins séu fimm til tíu manns komin til vinnu við eldi í Patreksfirði og 25 manns til vinnu við eldi í Arnarfirði.
Þessari fullyrðingu er harðlega mótmælt enda er hún ekki byggð á staðreyndum né gögnum um fjölda starfa. Hið rétta er að bein störf fiskeldisfyrirtækjanna á svæðinu eru 170 talsins. Þess er krafist að Ríkisútvarpið leiðrétti fréttina og hvetja til þess að miðillinn vandi betur fréttaflutning sinn.“