Þann 15. september 2018 mun heimurinn sameinast í stærsta hreinsunarátaki sem jörðin hefur orðið vitni að: World Cleanup Day.
Ísland og Vestfirðir láta sitt ekki eftir liggja og mun að sjálfsögðu taka þátt. Landvernd, Blái herinn, JCI, Plastlaus september, plokkarar og allir sem hafa áhuga á að búa í hreinum heimi, munu sameina krafta sína og hreinsa fjöll af rusli í tengslum við þennan alheimsviðburð.
Alheimshreinsunardagurinn verður haldinn í 150 löndum á laugardag og hvetur Ísafjarðarbær íbúa til að „plokka“, eins og það hefur verið kallað, þ.e.a.s. að týna rusl á víðavangi. Starfsmenn áhaldahúss munu staðsetja stóra strigapoka við neðangreinda staði þar sem plokkarar geta skilið eftir ruslið sem safnast.
Þetta er tilvalið tækifæri fyrir einstaklinga, vinahópa eða vinnustaði til að bæta sitt nærumhverfi og náttúru.
Söfnunarpokar verða staðsettir hér:
Ísafjörður
Bensínstöð N1
Krók
Edinborg bílastæði
Holtahverfi við Stórholt
Holtahverfi við Árholt/Djúpveg
Tunguhverfi við Bónus
Tunguhverfi við Fífutunga
Hnífsdalur
Við Kapellu
Við Félagsheimili
Suðureyri
Við Klofning
Við bensínstöð
Við Grunnskólann á Suðureyri
Flateyri
Bensínstöð
Við Grunnskóla Önundarfjarðar
Við Túngata/Hafnabakki
Þingeyri
Við Grunnskólann á Þingeyri
Hjá Blábanka
Við Þingeyrarlaug
Dreifbýli
Við Holt í Önundarfirði
Við Mýrarkirkju í Dýrafirði
Sæbjörg
bb@bb.is