Bæjarstjórn Vesturbyggðar boðar grenndarkynningu vegna breytinga á lóð við Arnarholt á Krossholtum, Barðaströnd. Breytingin felur í sér stækkun lóðar um 30 m til vesturs og stækkar lóðin úr 938 fm í 1700 fm. Ástæða stækkunar er að lóðarhafar vilja vinna að uppgræðslu á svæðinu til skjóls og fegrunar. Ekki er verið að stækka byggingarreit lóðarinnar. Eigendur og leigjendur eru samykktir fyrirhuguðum breytingum á deiliskipulagi eins og þeim sem hefur verið kynnt með gögnaum sem dagsett í júní 2018.
Frestur til að skila athugasemdum og ábendingum er til og með 26. september 2018. Litið verður svo á að þeir sem ekki gera athugasemdir séu samþykkir fyrirhugaðri framkvæmd.
Aron Ingi
aron@bb.is