Á 50. fundi Skipulags– og umhverfisráðs Vesturbyggðar var lögð fram til kynningar skýrsla VSÓ Ráðgjafar um umferðaröryggi á Bíldudal. Í skýrslunni er farið yfir forsendur, greiningu á núverandi ástandi, almennt um aðgerðir og tillögur til hraðalækkandi aðgerða. Einnig er stutt samantekt um gerð hugsanlegs strandvegs framhjá þéttbýlinu við strandlínuna.
Í skýrslunni er m.a. eftirfarandi lagt til:
- Sett verði upp svokallað þéttbýlishlið við suðurenda Dalbrautar, með miðeyju.
- Hámarkshraði lækkaður í 30 km/klst frá Dalbraut 8 framhjá leikvelli við leikskóla. Norðan við leikskóla verði hámarkshraði 40 km/klst, sem og sunnan við Dalbraut 8 en á þeim kafla verði einnig fleiri hraðatakmarkandi aðgerðir.
- Hraðavaraskilti verði fært u.þ.b. 250 m innan í þéttbýlið.
- Upplýsingaskilti við gangbrautir.
- 30 km skilti og 30 km yfirborðsmerking við upphaf 30 km/klst svæðis.
- Tvær miðeyjur verði settar upp á Dalbraut, neðan Dalbrautar 30 og 46.
Skipulags– og umhverfisráð tók vel í hugmyndirnar en lagði til að tillagan yrði auglýst og óskað eftir athugasemdum við tillöguna. Tillagan mun einnig verða kynnt á opnu húsi á Bíldudal sem verður auglýst síðar. Athugasemdir og ábendingar skal senda til þjónustufulltrúa Vesturbyggðar, Lilju Sigurðardóttir, í netfangið lilja@vesturbyggd.is Opið er fyrir athugasemdir og ábendingar til og með 1. nóvember. Að loknum athugasemdafresti mun skipulags- og umhverfisráð fjalla um þær ábendingar og athugasemdir sem berast og í framhaldi gera tillögu að aðgerðaráætlun til bæjarstjórnar í samvinnu við VSÓ ráðgjöf.
Aron Ingi