Jón Gunnar Kanishka Shiransson frá Golfklúbbi Ísafjarðar sigraði á fyrsta móti sumarsins í Áskorendamótaröð Íslandsbanka í aldursflokknum 12 ára og yngri. Mótið er hugsað fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skrefi í keppni og fylgir alþjóðlegri fyrirmynd. Leikið var á Korpúlfsstaðavelli í Reykjavík og voru rúmlega 60 keppendur skráðir til leiks í í Áskorendamótaröðinni. Jón Gunnar var eini Ísfirðingurinn sem var skráður til leiks.
Jón Gunnar lék 9 holur á 44 höggum og spilaði á skori sem var 3 höggum betur en næsti keppandi. Eftir örlítið basl í byrjun spilaði Jón gott golf og fékk samtals 5 pör á hringnum. Nánari úrslit og tölfræði má sjá áhttps://mitt.golf.is/pages/motaskra/upplysingarummot/?action=viewFinalScore&iw_language=is_IS
Næsta mót í mótaröðinni verður 23. Júní næstkomandi og verður gaman að fylgjast með þessum unga kylfingi í keppni á mótaröðinni.
Sæbjörg
sabjorg@gmail.com