Umhverfisstofnun hefur gefið út nýtt og aukið starfsleyfi fyrir Íslenska kalkþörungafélagið, sem gildir til 9. maí 2034. Starfsleyfið byggir á umsókn fyrirtækisins um 35 þúsund tonna árlega framleiðsluaukningu kalks úr 50 þúsund tonnum í 85 þúsund tonn. Von er á uppfærðri útgáfu starfsleyfisins sem finna má á vef Umhverfisstofnunar.
Þann 30. júní 2016 kynnti Kalkþörungafélagið fyrir Skipulagsstofnun áform sín um framleiðsluaukningu kalks á Bíldudal og leitaði stofnunin í kjölfarið umsagna frá hagsmunaaðilum. Þeirra á meðal eru Ísafjarðarbær, Vesturbyggð, Hafrannsóknarstofnun, Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða, Orkustofnun og Umhverfisstofnun.
Í samræmi við 6. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum yfirfór Skipulagsstofnun gögn félagsins, sem lögð voru fram ásamt umsögnum sem bárust. Á grundvelli þeirra var það mat Skipulagsstofnunar að fyrirhuguð framleiðsluaukning væri ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skyldi framkvæmdin því ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Samfara umsókn félagsins hefur fyrirtækið látið útbúa nýtt hljóðstigskort fyrir áhrifasvæði verksmiðjunnar og endurskoðað mengunarmælingar og vöktunaráætlun í samvinnu við viðeigandi stofnanir.
Í nýja starfsleyfinu sem Umhverfisstofnun staðfesti 11. maí er tekið fram að starfsleyfið hafi ekki tekið efnislegum breytingum umfram orðalagsbreytingu í grein 4.2 um mengunarmælingar sem hafa verið endurskoðaðar til að bæta gæði þeirra.
Sæbjörg
sabjorg@gmail.com