Áhugaverðir fyrirlestrar verða á norðanverðum Vestfjörðum á þriðjudag og miðvikudag, en Baldvin Þór Harðarson, sérfræðingur frá Hitamyndum í Færeyjum, heldur fyrirlestrana. Baldvin Þór mun fjalla um einangrun, loftun, gler, rakamyndun, varmadælur og fleira, sem ætti að henta vel áhugasömum húseigendum á köldum svæðum.
Fyrirlestrarnir verða um 30-60 mínútur og verða á eftirtöldum stöðum:
Þriðjudagur 8. maí kl. 12: Bolungarvík
Þriðjudagur 8. maí kl. 16.15: Suðureyri, kaffistofa Íslandssögu
Miðvikudagur 9. maí kl. 12.40: Flateyri, Félagsbær
Miðvikudagur 9. maí kl. 16.00: Þingeyri, Blábankinn
Margrét Lilja
milla@bb.is