Thursday 10. April 2025

Fastur liður að halda heiðurstónleika

Í kvöld og fimmtudag verða haldnir heiðurstónleikar í Edinborgarsal, þar sem Janis Joplin og Joe Cocker eru í aðalhlutverki. Undanfarin ár hafa Gummi Hjalta, Stebbi Jóns og félagar haldið heiðurstónleika við góðar undirtektir. “Það má segja sem svo að nú hafi tvö dúó sameinast,” segir Gummi og á þar við þá Gumma og Stebba annars vegar og Halla og Þórunni hins vegar. “Við ákváðum að taka höndum saman og halda í hefðina, þetta er bara svo skemmtilegt. Við höfum gaman að tónlist og viljum gefa öðrum tækifæri til að njóta í leiðinni.”

Miðasala er á Tix.is

Margrét Lilja

milla@bb.is

Auglýsing

Nýtt á BB

Fleiri fréttir