Þó svo að um sé að ræða innblöndun eldislaxa í veiðiár með villtum laxastofnum upp á 5 til 10 prósent sjást nær engar breytingar á 50 til 100 árum, í stærð smárra og fullorðinna laxa, né hve mikinn fisk áin framleiðir, né heldur breytingar á endurheimtum laxa eftir sjógöngu.
Þetta er niðurstaða Kven Glover en hann er yfirmaður rannsókna á Hafrannsóknastofnun Noregs og prófessor við Bergenháskóla og kemur fram í viðtali við hann í norska viðskiptablaðinu Dagens Næringsliv, þann 18 mars sl. Prófessor Glover hefur leitt vinnuna við að þróa líkan sem sýnir hvernig erfðaeiginleikar eldislaxa hafa áhrif á villta laxastofna.
Séu niðurstöður Kevin Glover heimfærðar á Ísland og skoðaðar með hliðsjón af áhættumati Hafrannsóknastofnunarinnar, ætti laxeldi í Ísafjarðardjúpi og aukið eldi á Austfjörðum ekki að hafa neikvæð áhrif á villta laxastofna.
Setja umræður um erfðablöndun í nýtt ljós
Þetta eru sláandi niðurstöður og hljóta að teljast mikið innlegg í umræðuna um áhættumat sem unnið hefur verið af Hafannsóknastofnun vegna fiskeldis hér á landi. Hafrannsóknastofnun hefur miðað við að innblöndunin megi ekki fara yfir 4 prósent. En samkvæmt niðurstöðum Glover bíða villtir laxastofnar ekki tjón þó svo að innblöndunin verði á bilinu 5 til 10 prósent. Það er því ljóst að þessar niðurstöður sæta miklum tíðindum og hljóta að setja umræður um áhættuna af erfðablöndun í algjörlega nýtt ljós.
Í áhættumati Hafrannsóknastofnunarinnar frá því á sl. sumri gæti innblöndun í Laugardalsá og Langadalsá/ Hvannadalsá, numið um 7 prósentum og vegna Breiðdalsár á Austfjörðum um 8 prósentum. Það er þessi innblöndun sem veldur því að samkvæmt áhættumati Hafrannsóknastofnunar mælir stofnunin ekki með því að laxeldi sé stundað í Ísafjarðardjúpi og verði 30 þúsund tonnum minna á Austfjörðum en burðarþolsmat segir til um.
„Ekki miklar afleiðingar“
Samkvæmt niðurstöðu Glover myndi innblöndun í því magni sem áhættumat Hafrannsóknastofnunin mælir ekki hafa skaðleg áhrif á villta laxastofna þó laxeldi væri stundað í Ísafjarðardjúpi og samkvæmt burðarþolsmati á Austfjörðum.
„Niðurstaðan bendir til að við búumst ekki endilega við að sjá miklar afleiðingar af hlutfallslega lítilli innblöndun við eldislaxa á hrygningarstöðvum“, segir prófessorinn.
Prófessor Glover er þekktur vísindamaður á sínu sviði, yfirmaður rannsókna á Hafrannsóknastofnun Noregs og prófessor við Bergenháskóla. Hann hefur leitt vinnuna við að þróa líkan sem sýnir hvernig erfðaeiginleikar eldislaxa hafa áhrif á villta laxastofna.
Í áhættumatsskýrslu Hafrannsóknastofnunar frá því á síðasta sumri er vitnað í fræðigreinar hans og Erfðanefnd Landbúnaðarins, sem hefur verið ákaflega gagnrýnin á laxeldi, bauð honum á fund fyrr á þessu ári, þar sem hann var aðalræðumaður.
-Gunnar