Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 203.500 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í janúar 2018, sem jafngildir 81,7 prósent atvinnuþátttöku. Af þeim voru 195.500 starfandi og 8.100 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,5 prósent og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 4,0 prósent og eykst lítillega milli ára.
Samanburður mælinga fyrir janúar 2017 og 2018 sýnir að vinnuaflið hefur aukist um 12.300 manns og hlutfall þess af mannfjölda aukist um 1,3 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 11.800 og hlutfall þeirra af mannfjölda hækkaði um 1,2 prósentustig. Atvinnulausir eru um 600 fleiri en á sama tíma árið 2017 og hlutfall þeirra jókst um 0,1 prósentustig. Alls voru 45.600 utan vinnumarkaðar og fækkaði þeim um 900 manns frá því í janúar 2017 en þá voru þeir 46.500.