Gámaþjónusta Vestfjarða biður íbúa að moka frá ruslatunnum sínum þar sem sorphirða er mjög þung þessa dagana. Vandasamt getur verið að komast að tunnunum í tíðarfari sem þessu, en stundum eru tunnur inni í görðum.
Eru íbúar því beðnir um að kanna aðstæður og fylgjast með losun samkvæmt sorphirðudagatali sem er á heimasíður Gámaþjónustunnar. Tveggja daga seinkun er á sorphirðu vegna veðurs og ófærðar.