Heildaratvinnutekjur á Vestfjörðum hækkuðu um tæp 5 prósent á tímabilinu 2008 til 2016. Eftir lækkun í framhaldi af hruninu 2008 hækkuðu atvinnutekjur um 7 prósent bæði árin 2015 og 2016. Á landsvísu hækkuðu atvinnutekjur um 9,7 prósent. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Byggðarstofnun gaf út í dag.
Á Vestfjörðum voru mestar atvinnutekjur voru greiddar í fiskveiðum en nokkuð þar eftir koma fiskvinnsla, opinber stjórnsýsla, fræðslustarfsemi og heilbrigðis- og félagsþjónusta.
Mesta aukningin í atvinnutekjum á Vestfjörðum varð í fiskeldi en nokkuð langt þar á eftir komu fræðslustarfsemi, heilbrigðis- og félagsþjónusta og gisting- og veitingar. Verulegur samdráttur varð hins vegar í mannvirkjagerð og opinberri stjórnsýslu auk fjármála- og vátryggingastarfsemi. Meðalatvinnutekjur í Ísafjarðarbæ eru á pari við landsmeðaltal en aðrir hlutar Vestfjarða rétt undir því.
Hæstar meðalatvinnutekjur voru á Austurlandi þegar litið er til einstakra landshluta árið 2016, en þar á eftir kom höfuðborgarsvæðið og Vestfirðir eru í þriðja sæti. Lægstar voru meðaltekjurnar á Suðurnesjum og Norðurlandi vestra.