„Ég hef þegar kallað eftir upplýsingum um hvernig málið er vaxið og hver aðdragandinn er,“ segir Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, um mál Eggerts Einers Nielson sem hefur verið í fréttum síðasta sólarhringinn. Eggert var synjað um ríkisborgararétt þrátt fyrir að vera fæddur á Íslandi, eiga íslenska móður og hafa búið hér fyrstu sjö ár ævi sinnar og svo aftur síðustu sjö árin.
Páll segir í samtali við mbl.is að hann búist við að fá skýrslu um mál Eggerts síðar í dag og óskað var eftir upplýsingum bæði frá Útlendingastofnun og lögmanni Eggerts.
Hann segir að í fljótu bragði sé málið þannig vaxið að það hljóti að koma til kasta allsherjar- og menntamálanefndar þegar næst verður ákveðið hverjir fá íslenskan ríkisborgararétt með lögum. Það er gert tvisvar á ári, fyrir þinglok um vor og haust.
„Miðað við það sem ég hef séð um málið finnst mér borðleggjandi að mál hans fái jákvæða afgreiðslu,“ segir Páll.