Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, opnuðu í gær nýja samráðsgátt stjórnvalda á vefslóðinni samradsgatt.island.is. Markmið samráðsgáttarinnar er að auka gagnsæi og möguleika almennings og hagsmunaaðila á þátttöku í stefnumótun, reglusetningu og ákvarðanatöku opinberra aðila.
Þar er á einum stað hægt að finna mál ráðuneyta sem birt hafa verið til samráðs við almenning, svo sem drög að lagafrumvörpum.
Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins kemur fram að öllum sé frjálst að senda inn umsögn eða ábendingu og jafnframt er mögulegt að gerast áskrifandi að sjálfvirkri vöktun upplýsinga, hvort heldur er eftir málefnasviði, stofnun eða tilteknu máli. Að samráðstímabili loknu er gerð grein fyrir úrvinnslu athugasemda og niðurstöðu máls. Lögð er áhersla á skýra framsetningu og auðvelda notkun.
Samráðsgáttin er ætluð bæði almenningi og hagsmunaaðilum, svo sem í atvinnulífi, félagasamtökum og fræðasamfélagi. Fyrst um sinn munu einungis ráðuneyti setja inn mál til samráðs en líklegt er að ríkisstofnanir og e.t.v. fleiri aðilar muni bætast við síðar.