Hríðarbakki með hvössum norðvestan vindi og jafnvel stormi allt að 18-22 m/ s stefnir á Vestfirði. Veðrið verður hvað verst nærri hádegi með skafrenningi, snjókomu og litlu skyggni. Lægir eitthvað síðdegis. Á morgun er spáð allhvassri norðaustanátt á Vestfjörðum og snjókomu.
Færð á vegum á Vestfjörðum:
Hálka eða snjóþekja og éljagangur mjög víða. Þungfært er á Steingrímsfjarðarheiði, þæfingur og snjóþekja í Ísafjarðardjúpi.