Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 4,25 prósent. Þetta kemur fram í frétt á vef Seðlabanka Íslands.
Samkvæmt nýlega birtum þjóðhagsreikningum var hagvöxtur 4,3 prósent á fyrstu níu mánuðum ársins, sem er meiri vöxtur en fyrri tölur höfðu gefið til kynna. Því eru horfur á að hagvöxtur verði meiri á árinu öllu en spáð var í nóvemberhefti Peningamála. Áfram hægir á vexti útflutnings en innlend eftirspurn eykst hraðar en spáð hafði verið. Skýrist það m.a. af meiri slaka í opinberum fjármálum á yfirstandandi ári en áður var talið.
Verðbólga var 1,7 prósent í nóvember og hefur hún verið á bilinu 1,5-2 prósent um nokkurt skeið. Áfram hefur dregið úr verðhækkunum á húsnæðismarkaði. Að öðru óbreyttu stuðlar það að minni verðbólgu en á móti fjara áhrif hærra gengis krónunnar út.
smari@bb.is