„Stjórnin fordæmir hverskonar sóun á verðmætum við meðhöndlun okkar helstu náttúruauðlindar,“ segir í tilkynningu frá stjórn Samtaka fiskvinnslu og útflytjenda, SFÚ. Í gær var greint frá brottkasti um borð í íslenskum skipum á fréttaskýringaþættinum Kveik á RÚV.
„Brottkast og svindl er ólíðandi,“ segir í tilkynningunni og þar er skorað á næstu ríkisstjórn að grípa strax til viðeigandi ráðstafana til að stöðva slíka sóun. Kerfið verði að tryggja að hagsmunir samfélagsins séu tryggðir og að sóun verðmæta stöðvist og heyri sögunni til.
„Eðlilegt hlýtur að teljast, að í sem flestum tilfellum eigi viðskipti sér stað í gegnum þriðja aðila eins og þekkt er í viðskiptum um fiskmarkaði sem staðsettir eru í flestum höfnum landsins. Óeðlilegir viðskiptahættir við meðhöndlun auðlindarinnar eiga að heyra sögunni til.“
smari@bb.is