Ríflega sex Íslendingar af hverjum tíu ferðuðust til útlanda í sumar. Þetta kemur fram í þjóðarpúlsi Gallup. Hlutfallið er 61% og hefur hækkað jöfnum skrefum frá árinu 2010, en það sumar ferðaðist þriðji hver Íslendingur til útlanda. Hlutfallslega fleiri konur en karlar ferðuðust til útlanda í sumar, og fleiri meðal fólks yngra en 30 ára en þeirra sem eru eldri. Íbúar höfuðborgarsvæðisins ferðuðust frekar til útlanda í sumar en íbúar landsbyggðarinnar, og fólk með háskólapróf frekar en þeir sem hafa minni menntun að baki. Loks er fólk líklegra til að hafa ferðast til útlanda í sumar eftir því sem það hefur hærri fjölskyldutekjur.
Einnig var spurt um ferðalög innanlands. Hlutfallslega flestir þeirra sem ferðuðust innanlands myndu kjósa Framsóknarflokkinn, ef kosið yrði nú, eða 83%, en fæstir Sjálfstæðisflokkinn, eða 61%.
smari@bb.is