Miðflokkurinn býður nú fram í fyrsta sinn, undir tryggri forystu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, sem er sá stjórnmálaforingi nú um stundir sem hefur sýnt það best að hafa hæfileika og festu til að takast á við stór og flókin úrlausnarefni og ná árangri.
Vextirnir
Megináhersla Miðflokksins fyrir komandi kosningar er endurskipulagning fjármálakerfisins, markmiðið er að skipuleggja fjármálakerfi landsins þannig að það þjóni almenningi og fyrirtækjum sem best. Megináherslan með þeirri heildstæðu áætlun sem flokkurinn hefur kynnt er að ná niður vaxtastigi í landinu. Hagsmunirnir eru gríðarlegir. Fyrir fjölskyldu sem skuldar 25 milljónir, samsvarar 2% vaxtalækkun því að vaxtakostnaður heimilisins lækki um 500 þúsund á ári – hálfa milljón! – og það er ráðstöfunarfé eftir skatt.
Ísland allt – byggðamálin
Ísland allt – byggðastefna Miðflokksins hefur það að markmiði að láta landið allt vinna sem eina heild. Eins og íbúar landsbyggðarinnar þekkja þá hefur þjónusta sogast til höfuðborgarsvæðisins á undanförnum árum og kjörtímabilum. Það þarf að tryggja sem jafnast aðgengi íbúa landsins að þeirri þjónustu sem hið opinbera bíður upp á. Hluti af „Ísland allt“ áætluninni er uppbygging sérfræðiþjónustu á landsbyggðinni og styrking heilsugæslunnar. Lykilatriði í jöfnu aðgengi landsmanna að þjónustu er staðsetning innanlandsflugsins í Vatnsmýri.
Vegirnir
Kostnaður við að nota vegakerfið er of hár. Í dag er skattlagning á umferð og ökutæki umtalsvert meiri en þeir fjármunir sem varið er til vegagerðar og viðhalds vegakerfisins. Áður en vegtollar koma til skoðunar þarf að tryggja að þeir fjármunir sem þegar eru teknir af vegfarendum skili sér til uppbyggingar vegakerfisins. Þar er af nógu að taka. Þó að stórframkvæmdirnar séu mest áberandi, þá er nauðsynlegt að ráðast í átak á safn- og tengivegum til sveita. Ein hugmynd, sem Miðflokkurinn vill láta skoða alvarlega er að leggja bundið slitlag á fáfarna vegi, í núverandi veglínu, með lækkuðum hámarkshraða.
Nám framtíðarinnar
Miðflokkurinn leggur áherslu á að stuðningur við iðn- og verknám á framhaldsskólastigi verði aukinn og að á háskólastiginu verði áherslan á tækni- og raungreinar aukin verulega. Við verðum að aðlaga öll skólastigin að þeirri framtíð sem við okkur blasir.
Að endingu; Teigskógur, fiskeldi og Hvalárvirkjun: Já, já og já.
Miðflokkurinn ætlar að koma veglagningu um Teigskóg af stað án tafa, með lagasetningu ef þörf er á. Miðflokkurinn er fylgjandi því að fiskeldi fái að byggjast upp við Ísafjarðardjúp, í sátt við náttúruna með þeim mótvægisaðgerðum sem færar eru í nútíma fiskeldi. Miðflokkurinn er fylgjandi því að áform um Hvalárvirkjun nái fram að ganga, enda hefur virkjunarkosturinn verið í nýtingaráætlun. Til viðbótar virkjunaráformunum þarf að ganga til þess verks að tryggja raforkuöryggi á norðanverðum Vestfjörðum.
Bergþór Ólason
Oddviti Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi
Greinin birtist fyrst í 24. tbl. Bæjarins besta