Ferðaþjónustufyrirtækið Fisherman á Suðureyri hefur fært út kvíarnar og á dögunum opnaði sælkerabúð með sjávarfang á Hagamel í Vesturbæ Reykjavíkur. Með þessu er hægt að jafna árstíðarbundna sveiflur í vestfirskri ferðaþjónustu. Í Fisherman í Reykjavík er hægt að velja fisk, meðlæti og sósu, ýmist til að taka með eða borða á staðnum. Þá er boðið upp á ýmsa sérrétti eins og plokkfisksamlokuna víðfrægu, smjörsteiktar gellur, og djúpsteiktan fisk og franskar.
Fisherman er 16 ára gamalt ferðaþjónustufyrirtæki sem var stofnað á Suðureyri með það markmið að endurbyggja hús sem til stóð að rífa í lítið gistiheimili. Þannig hófst reksturinn sem hefur síðan stækkað og stækkað í tímans rás.
„Við lítum fyrst og fremst á þessa verslun sem hverfisverslun og skemmtilega viðbót við Vesturbæinn,“ segir Elías Guðmundsson, framkvæmdastjóri Fisherman í samtali við blaðamann Morgunblaðsins.
smari@bb.is