Guðlaug efst hjá Bjartri framtíð
Björt framtíð samþykkti í gær sex efstu frambjóðendur á listum flokksins fyrir þingkosningarnar í lok mánaðarins. Guðlaug Kristjánsdóttir stjórnarformaður Bjartrar framtíðar skipar efsta sæti á lista flokksins í Norðvesturkjördæmi. Guðlaug er oddviti Bjartrar framtíðar í Hafnarfirði og er forseti bæjarstjórnar.
Efstu sex á lista Bjartrar framtíðar í Norðvesturkjördæmi:
- Guðlaug Kristjánsdóttir, sjúkraþjálfari og stjórnarformaður Bjartrar framtíðar
- Kristín Sigurgeirsdóttir, skólaritari í tónlistarskóla
- Elín Matthildur Kristinsdóttir, meistaranemi
- Gunnsteinn Sigurðsson, þroskaþjálfi og kennari
- Ásthildur Ósk Ragnarsdóttir, stuðningsfulltrúi og nemi.
- Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
smari@bb.is