Samþykkt var einróma tillaga stjórnar kjördæmaráðs VG í Norðvesturkjördæmi í gær að stilla upp á lista flokksins í kjördæminu fyrir komandi kosningar. Lilja Rafney Magnúsdóttir var í efst á lista Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi í síðustu kosningum og hún sækist eftir fyrsta sætinu á nýjan leik. Flokkurinn stefnir á að kynna framboðslistann sem fyrst, enda stutt í kosningar. Kosningabaráttan er að hefast þessi dægrin og í kvöld verður Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, með opinn stjórnmálafund í Edinborgarhúsinu á Ísafirði.
smari@bb.is