Ísafjarðarhöfn hefur ekki látið gera mælingar á loftgæðum þegar stór skemmtiferðaskip eru í höfn á Ísafirði. Í gær var greint frá mælingum sem Náttúruverndarsamtök Íslands í samstarfi við þýsku náttúruverndarsamtökin NABU gerðu á Sundahöfn í Reykjavík í sumar. Loftgæði í Sundahöfn verða margfalt verri en í miðborgum erlendra stórborga á borð við London, þegar skipin láta vélar sínar ganga við hafnarbakkann. Dr. Axel Friedrich, sem hefur verið vísindalegur ráðgjafi mælinga á mengun frá skemmtiferðaskipum við Reykjavíkurhöfn, varar fólk sem glímir við heilsufarsvandamál við að fara á skemmtiferðaskip sem og að fara til staða sem skipin heimsækja.
Guðmundur M. Kristjánsson, hafnarstjóri Ísafjarðarbæjar, segir honum vitanlega hafi ekki verið gerðar mælingar á loftgæðum á Ísafirði í tengslum við komu skemmtiferðaskipa. Hann bendir á að nýjar reglur Alþjóðasiglingamálasamtakanna (IMO) taki gildi árið 2020. „Þar verða reglur um brennslu á svartolíu hertar og annað hvort þurfa menn að brenna hreinna eldsneyti eða setja upp hreinsibúnað í skipunum,“ segir Guðmundur.
smari@bb.is