Lögreglu barst tilkynningu fyrr í dag um bílveltu fyrir ofan Vatnsfjörð á Dynjandisheiði. Bílveltan varð um fjóra kílómetra frá Flókalundi. Í bílnum voru erlendir ferðamenn en mbl.is hefur eftir lögreglunni á Vestfjörðum að bílveltan hafi verið minni háttar og farþegar bílsins sluppu stórslysalaust frá veltunni.
smari@bb.is