Miðvikudagur 12. mars 2025

María Júlía á siglingu fyrir Bjargtanga

Þessa flottu mynd tók Jón Páll Ásgeirsson c.a 1977-8 en hún sýnir Maríu Júlíu á siglingu fyrir Bjargtanga.

María Júlía var smíðuð sem björgunar- og varðskip í Frederikssund Skibsværft í Frederikssund í Danmörku árið 1950 fyrir Ríkissjóð Íslands. 

Það var einnig notað við hafrannsóknir og því má segja að þetta sé fyrsta hafrannsóknaskip Íslands.

1969 var María Júlía seld til Patreksfjarðar og henni breytt í fiskiskip. Hélt nafni sínu en fék einkennisstafina BA og númerið 36. Kaupandinn var Skjöldur h/f.

María Júlía BA 36 var seld Þórsbergi h/f á Tálknafirði árið 1985, seljandi Vaskur h/f á Patreksfirði. Þórsberg gerði skipið út til ársins 2003. Hún var tekin af skipaskrá haustið 2014.

Skipið er í eigu Áhugafélags um uppbyggingu skipsins og stofnaðilar eru Byggðasafns Vestfjarða og Minjasafns Egils Ólafssonar á Hnjóti.

Eftir að hafa legið lengi í höfn á Ísafirði var María Júlía dregin til Akureyrar síðla vetrar 2023 og þaðan til Húsavíkur haustið 2024.

Til setndur að María Júlía verði tekin upp í slipp á Húsavík á næstunni.

Af skipamyndir.com

International Camp á Kerecisvellinum 03.-05. júní

Martin Campbel og Mark Tinkler

Tveir erlendir þjálfarar frá Middlesbrough FC verða aðalþjálfarar í knattspyrnubúðunum, en það eru þeir Martin Campbell og Mark Tinkler.

Martin Cambell er „Head Of Player Recruitment“ hjá knattspyrnuakademíu félagsins og hefur yfirumsjón yfir þeim ungu leikmönnum sem eru fengnir til liðs við Middlesbrough FC.

Mark Tinkler er aðalþjálfari U-21 karlaliðs félagsins. Þess má geta að Mark átti flottan feril sem leikmaður og lék m.a. með Leeds Utd í ensku úrvalsdeildinni. Mark var á sínum tíma fyrirliði U-18 ára landsliðs Englands en í liðinu var m.a. David Beckham. Þegar Micahel Carrick fyrrum leikmaður Man Utd, Tottenham og West Ham gerðist knattspyrnustjóri Middlesbrough FC bað hann Mark sérstaklega um að vera aðstoðarstjóra sinn um hríð.

Báðir þjálfararnir hafa gríðarlega mikla þekkingu og reynslu og njóta mikillar virðingar í boltanum.

International Camp eða Alþjóðlegu knattspyrnubúðirnar eru fyrir öll börn fædd 2011-2018.

Skólastjóri verður Heiðar Birnir.  

Allir aðrir þjálfarar koma frá Vestra.

Guðni Th. Jóhannesson verður prófessor í nafni Jóns Sigurðssonar

Guðni Th. Jóhannesson flytur erindi á fundi Sögufélags Ísfirðinga.

Rektor Háskóla Íslands hefur ákveðið, að höfðu samráði við forseta Hugvísindasviðs, að Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands og prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, verði prófessor í nafni Jóns Sigurðssonar við Háskóla Íslands frá 1. júlí nk.

Starfið byggir á grunni þingsályktunartillögu frá Alþingi árið 2011, á 200 ára fæðingarafmæli Jóns Sigurðssonar og aldarafmæli Háskóla Íslands, en meðal lykilverkefna prófessorsins er að standa að árlegum ráðstefnum og námskeiðum í sumarháskóla á Hrafnseyri.

Guðni Th. Jóhannesson segir: „Mér þykir vænt um að taka við þessu merka prófessorsstarfi og vonast til að geta haldið áfram því góða starfi sem Guðmundur Hálfdanarson hefur sinnt. Ég hlakka til samstarfs við heimafólk vestra, ekki síst á vettvangi Háskólaseturs Vestfjarða.“

Guðmundur Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, hefur gegnt starfinu frá 1. apríl 2012. Á þeim tíma hefur hann komið að og styrkt ýmis verkefni í samstarfi við stofnanir og einstaklinga á Vestfjörðum, svo sem fornleifarannsóknir og sumarnámskeið á Hrafnseyri, ráðstefnur á Ísafirði, m.a. í samstarfi við Háskólasetur Vestfjarða, og starfsemi Tungumálatöfra á Ísafirði.

Frá árinu 2023 hefur Guðmundur enn fremur starfað sem formaður Hrafnseyrarnefndar, en hlutverk hennar er að þjóna sem faglegur bakhjarl staðarhaldara á Hrafnseyri og stuðla að því að starfsemin á Hrafnseyri styðji við menningar- og fræðslustarf á Vestfjörðum.

Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, segir: „Það er afar mikill fengur fyrir Háskóla Íslands að fá fyrrverandi forseta, Guðna Th. Jóhannesson, til að taka að sér þetta hlutverk enda býr hann yfir einstakri þekkingu og reynslu sem mun nýtast afar vel í þessu starfi, ekki síst með tilliti til starfseminnar á Vestfjörðum. Ég vil jafnframt þakka Guðmundi Hálfdanarsyni fyrir hans frábæra starf á undanförnum árum sem Jóns Sigurðssonar prófessor.“

Ólöf Garðarsdóttir, forseti Hugvísindasviðs, segir: „Ég óska Guðna Th. Jóhannessyni innilega til hamingju með prófessorsstarfið sem kennt er við Jón Sigurðsson. Hann er afar vel að því kominn enda hefur hann unnið að rannsóknum á sviði stjórnmála- og persónusögu um langt skeið. Ég hlakka til að fylgjast með Guðna í starfi hans á komandi árum. Um leið vil ég nota tækifærið og þakka Guðmundi Hálfdanarsyni fyrir hans framlag til rannsókna og miðlunar þann tíma sem hann hefur gegnt starfinu. Hann hefur átt ríkan þátt í því að efla enn frekar blómlegt samstarf milli Háskóla Íslands og mennta- og menningarstofnana á Vestfjörðum.“

Háskólakynningar í Menntaskólanum

Föstudaginn 14.mars verður Háskólinn á Bifröst með kynningu á námsframboði sínu í Menntaskólanum.

Kynningin verður í Gryfjunni kl.12:40 – 13:10. Margrét Jónsdóttir Njarðvík rektor og Guðrún Rannveig Stefánsdóttir umsjónarmaður háskólagáttar háskólans á Bifröst verða á staðnum til að spjalla við nemendur um allt sem viðkemur háskólanum og náminu.

Bifröst er fjarnáms háskóli og er námsferill nemenda að mestu undir þeim kominn. Fjarnám hentar t.d. þeim vel sem eiga ekki kost á að sækja staðarnám eða vilja stunda nám samhliða starfi.

Þá verða Háskóli Íslands, Háskólinn á Hólum og Háskólasetur Vestfjarða með kynningu á sínu námsframboði föstudaginn 28. mars frá kl. 12:30 – 14:00 í Menntaskólanum.

Vesturferðir: aðalfundi frestað vegna deilna um eignarhald

Vesturferðir eru til húsa í Edinborgarhúsinu.

Aðalfundi Vesturferða sem halda átti í síðustu viku var frestað eftir að bréf barst fá einum hluthafanna þar sem gerðar voru athugasemdir við nokkur atriði. Staðfestur ársreikningur hafi ekki verið lagður fram og því ekki hægt að taka hann til afgreiðslu. Einnig var gerð athugasemd um arðgreiðslu sem stjórn félagsins leggur til.

Jón Auðunsson, framkvæmdastjóri Vesturferða staðfesti að tillaga væri um 45 m.kr. arðgreiðslu. Rekstur félagsins hafi gengið vel síðustu tvö ár og verið metár. Hagnaður af rekstri hefði verið 43,6 m.kr. i fyrra. Aðeins einu sinni áður í sögu félagsins hefði verið greiddur arður sem þá var 1 m.kr.

ólögmæt eigendaskipti að hlutafé

Í bréfinu er einnig gerð athugasemd við eigendaskipti að hlutafé í félaginu á síðasta ári og fullyrt að um ólögmæt viðskipti hafi verið að ræða. Á síðasta ári hafi hlutir gengið kaupum og sölum án þess að stjórn hafi upplýst hluthafa um það sem eigi forkaupsrétt. Segir í bréfinu að grunur sé um að einn stjórnarmanna hafi tekið þátt í sölu á hlutum til sjálfs síns og haft þá upplýsingar um stöðu félagsins sem aðrir hluthafa höfðu ekki. Skrá yfir hluthafa sé röng þar sem eigendaskipti að hlutum án þess að gæta að forkaupsrétti annarra hluthafa séu óskuldbindandi.

Ný verkefni Sýslumannsins á Vestfjörðum

Í upphafi ársins 2025 tók gildi ný löggjöf, sem felur í sér að embættið fer nú með framkvæmd laga nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og laga um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög nr. 108/1999.   

Í upphaflegu lögunum um sjóði og stofnanir var kveðið á um að dómsmálaráðherra annaðist framkvæmd laganna, þ.e. hefði eftirlit með ýmsum þáttum sjóða og stofnana sem undir lögin falla. Hins vegar var Ríkisendurskoðun með lögunum falið að annast móttöku og yfirferð ársreikninga þeirra aðila sem lögin taka til.

Árið 2006 var ákveðið að færa þann þátt framkvæmdar laganna sem dómsmálaráðuneytið annaðist til sýslumanna og hefur hún verið hjá Sýslumanninum á Norðurlandi vestra þar til nú. Áfram skyldi Ríkisendurskoðun þó annast móttöku og kalla eftir þeim ársreikningum sem í lögunum var kveðið á um.  Þó hefur ekki verið beitt neinum viðurlögum ef útaf hefur verið brugðið með skil ársreikninga og nokkuð um að þeim hafi ekki verið skilað. 

Auk áðurnefndra tilflutninga um síðustu áramót tók gildi nýtt ákvæði þess efnis að þeir aðilar sem lögin taka til og ekki skiluðu ársreikningum fyrir 1. september næsta ár skyldu sæta stjórnsýslusektum að fjárhæð allt að kr. 600.000.  Var jafnfram ákveðið að móttaka ársreikninga færðist frá Ríkisendurskoðun til Sýslumannsins á Vestfjörðum auk þess að embættið skyldi annast álagningu stjórnsýslusekta  ef skilum var ekki sinnt. Ekki er ljóst um hversu viðamikið verkefni er að ræða en skilskyldir aðilar voru um síðustu áramót 681.

Auk framangreinds var ákveðið að umsýsla með trú – og lífsskoðunarfélögum færðist til embættisins frá embætti Sýslumannsins á Norðurlandi eystra, þar með talin móttaka árlegra skýrslna trúfélaga og lífsskoðunarfélaga sem skila ber fyrir 31. mars ár hvert. Um skil ársreikninga þessara félaga gilda frá og með síðustu áramótum sömu reglur og viðurlög ef útaf er brugðið og að framan greinir um sjóði og stofnanir. 

Rétt þótti að þessum verkefnum yrði sinnt á skrifstofu embættisins á Patreksfirði til að efla starfsemina þar og til þess ráðnir einn skrifstofumaður og einn lögfræðingur, sem nýlega hófu störf. 

Allt hefur þetta kallað á nokkurn undirbúning, ekki síst varðandi tölvukerfi og forritun og er sú vinna í fullum gangi.  Embættið hefur átt góða samvinnu við dómsmálaráðuneytið og Ríkisendurskoðun sem og embætti sýslumannanna á Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra sem samkvæmt sérstöku samkomulagi veita enn trausta handleiðslu í ýmsum þáttum þeirra verkefna sem þau önnuðust.

Föstudaginn 8.mars sl. færði svo Ríkisendurskoðun embættinu öll pappírsgögn sem stofnunin varðveitti og lúta að sjóðum og stofnunum og teljast enn hafa þýðingu fyrir þetta nýja verkefni embættisins og þurfti undir þau þrjá kassa.  Var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri.  Eldri gögn voru afhent Þjóðskjalasafni til varðveislu en öll gögn sem varðveitt voru á tölvutæku formi hafa verið send embættinu.

Á myndinni má sjá Jarþrúði Hönnu Jóhannesdóttur, sviðsstjóra og staðgengil ríkisendurskoðanda, Jónas B. Guðmundsson, sýslumann á Vestfjörðum og fyrir framan þau standa Martyna Julia Czubaj, skrifstofumaður og Thelma Dögg Theodórsdóttir, lögfræðingur og milli þeirra þeir kassarnir sem nefndir voru.

Bíldudalur: stækka gamalt íbúðarhús

Hafnarbraut 8 Bíldudal.

Guðlax ehf hefur sótt um að breyta Hafnarbraut 8 á Bíldudal. Áformað er að byggja 109,3 m2 hæð úr timbri ofan á húsið og fjölga íbúðum úr einni í tvær. Húsið er steinsteypt, byggt árið 1954. 

Mikill íbúðaskortur er á Bíldudal og kemur fram í húsnæðisáætlun Vesturbyggðar að þörf sé á 73 íbúðum næstu 10 árin þar sem fjölga muni um 100 manns á tímabilinu samkvæmt miðspá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Svæðið er skilgreint sem íbúðarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi Vesturbyggðar en er ódeiliskipulagt.

Skipulags- og framkvæmdaráð Vesturbyggðar leggur til við Heimastjórn Arnarfjarðar að skipulagsfulltrúa verði falið að grenndarkynna byggingaráformin og fjölgun íbúða fyrir aðliggjandi lóðarhöfum.  Ráðið leggur til að framkvæmdin verði grenndarkynnt fyrir eigendum fasteignanna að Hafnarbraut 6 og 10, Dalbraut 1, 7 og 9.

Uppdrættir af breytingunum.

Okkar villtustu draumar!

Fyrir réttum tuttugu árum varð til  hópur einstaklinga, fyrirtækja og opinberra stofnana, sem vildi koma á fót menntastofnun á háskólastigi á Vestfjörðum. Í sjálfu sér var það rökrétt framhald baráttu þeirra einstaklinga sem börðust fyrir mennta/framhaldsskóla í heimabyggð á Vestfjörðum, en slíkur var stofnaður 1970 og var löngu búinn að sanna ágæti sitt, festa sig í sessi og auka menntunarstig Vestfirðinga mikið.

Eins og alltaf voru einhverjar úrtöluraddir en þær höfðu ekki nokkur áhrif á frumkvöðla stofnunar Háskólaseturs, sem voru 42 og héldu þeir ótrauðir áfram og beittu sér fyrir tilurð þess.

Nú tuttugu árum síðar þegar litið er um öxl er ekki hægt að segja annað en að vel hafi til tekist.

Svo vel að þessi stofnun hefur farið langt fram úr villtustu draumum okkar stofnenda.

Ísafjörður, sem hefur frá alda öðli verið mikill menningar- og menntabær hefur fyrir tilstilli Háskólaseturs Vestfjarða komist á „alheimskortið“ sem slíkur og þannig hefur hróður og kostir þessa landshluta orðið stórum hluta heimsbyggðarinnar augljós. Leyfi ég mér að fullyrða að einmitt það eigi ekki hvað síst þátt í því hversu margir ferðalangar utan úr heimi sækja Vestfirði heim.  Nemendur skólans hafa gætt mannlíf okkar Vestfirðinga nýjum straumum, sem hafa munu veruleg áhrif til góðs fyrir menningu, atvinnulíf og víðsýni okkar bæði í nútíð og framtíð.

En vel að merkja, þessi árangur hefði ekki náðst án tilvistar forstöðumanns, starfsmanna skólans og samhentrar stjórnar hans, sem okkar „gamli“ bæjarstjóri Halldór Halldórsson fór lengst af fyrir og í dag Harpa Grímsdóttir. Þeim öllum ber að þakka fyrir frábært og óeigingjarnt starf í þágu Vestfjarða.

Vestfirðingar, til hamingju með 20 ára afmæli Háskólaseturs Vestfjarða. Haldið áfram að styðja þessa stofnun, sem verður  áður en langt um líður, ein af sterkustu innviðastoðum Vestfjarða.

Hér með hvet ég alla einstaklinga og fyrirtæki á Vestfjörðum að gaumgæfa starfsemi þessarar merku stofnunar og leggja henni lið að fremsta megni, því hún á eftir að hafa mikil áhrif á framtíð Vestfjarða.

Þorsteinn Jóhannesson Dr. Med. Skurðlæknir, fyrrverandi yfirlæknir á sjúkrahúsi Ísafjarðar, einn af stofnendum Háskólaseturs og formaður fulltrúaráðs þess til 9 ára.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga: mikil skerðing á framlögum Súðavíkurhrepps

Súðavík. Sveitarfélagið er til húsa í þessu húsi. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson..

Tillögur Innviðaráðuneytisins að nýjum úthlutunarreglum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga munu lækka framlögin til Súðavíkurhrepps um 67-68%. Þetta kemur fram í umsögn Súðavíkurhrepps um frumvarpsdrögin í samráðsgátt stjórnvalda. Þar er tillögunum líkt við hamfarir fyrir sveitarfélagið.

Tillögurnar eru sagðar blanda pólitískum markmiðum um fækkun sveitarfélaga inn í úthlutunina með því að lækka framlögin til fámennra sveitarfélaga. Spurt er hvort það sé hlutverk Jöfnunarsjóðs að knýja sveitarfélögin í þrot og ná þannig fram fækkun þeirra.

Í hinum nýju reglum er aukið við framlög til svonefndra fjölkjarna sveitarfélaga eins og Ísafjarðarbæjar og tekur Súðavíkurhreppur undir að það sé eðlilegt og því verði þá mætt með línulegri skerðingu á öll önnur sveitarfélög. Hins vegar sé skerðingin sem Súðavík sé ætlað að bera ósanngjörn, sveitarfélagið sé landmikið og fámennt.

Ísafjarðarbær: fimm umsóknir í Fiskeldissjóð

Félagsheimilið á Þingeyri. Mynd: Ísafjarðarbær.

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar samþykkti á mánudaginn að leggja inn umsóknir fyrir fimm verkefni í Fiskeldissjóð.

Um er að ræða hönnun slökkvistöðvar á Ísafirði og framkvæmdir við grunn byggingarinnar, endurnýjun lagna í Sundhöll Ísafjarðar, endurbætur á félagsheimilinu á Þingeyri, varmadælur fyrir Torfnesvöll og jarðgerðarvél (moltuvél).

Bæjarráð telur rétt að forgangsraða verkefnum þannig að fyrir gangi verkefni þar sem hægt er að ljúka framkvæmdum á þessu ári.

Félagsheimili Þingeyri

  • Sótt er eingöngu fyrir 2025
  • Sótt er um vegna endurbóta innan og utandyra, fyrir nýju gólfi, hitakerfi,
    gluggum og múrviðgerðum.

Sundhöll Ísafjarðar

  • Sótt er eingöngu fyrir 2025
  • Sótt er um styrk vegna endurbóta innan -og utanhúss, ásamt endurnýjun
    lagnakerfis.

Jarðgerðarvél

  • Sótt er eingöngu fyrir 2025
  • Sótt er um fyrir innkaupum og uppsetningu á jarðgerðarstöð

Slökkvistöð á Suðurtanga 1

  • Fyrirvari er um að mögulega verður sótt um aftur fyrir 2026.
  • Sótt verður um styrk fyrir hönnun, útboð og fyrsta fasa verkframkvæmda 2025

Torfnes – Varmadælur

  • Sótt er um eingöngu fyrir 2025
  • Endanleg kostnaðaráætlun liggur ekki fyrir, þar sem farið verður í endalega
    hönnun ef styrkur fæst.
  • Kostnaðaráætlun er byggð á mati Bláma en skekkjumörk geta verið töluverð
    vegna óvissuþátta í hönnun og innkaupaverða
  • Rekstrarkostnaður er einnig breytilegur og fer eftir vali á búnaði og hönnun
    lausnarinnar.

Nýjustu fréttir