Gunnlaugur Jónasson varð 95 ára á dögunum. Af því tilefni ætla tónlistarmenn á Ísafirði að halda tónleika honum til heiðurs og þakka í leiðinni það mikilvæga starf sem hann hefur lagt fram í þágu tónlistar á Ísafirði. Fram koma m.a.Kvennakór Ísafjarðar, Karlakórinn Ernir, Kirkjukór Ísafjarðarkirkju og fleiri.
Tónleikarnir verða í Ísafjarðarkirkju á morgun, sumardaginn fyrsta, og hefjast kl 16.
Viðburðurinn er öllum opinn og öll eru velkomin.