Framkvæmdasýslan óskar í dag eftir tilboðum í verkið Ofanflóðavarnir á Bíldudal. Um er að ræða almennt útboð.
Verkið felst í því að reisa varnargarða og keilur sem staðsettir verða í hlíðinni ofan við byggðina á Bíldudal og uppi í Stekkjargilskjaftinum. Þessum mannvirkjum er ætlað að stöðva ofanflóð úr giljunum og hlíðunum ofan við bæinn á Bíldudal. Áður var kominn leiðigarður utar í bænum til að beina flóðum úr Búðargili norður fyrir byggðina.
Um er að ræða gerð þvergarðs og snjóflóðavarnakeila og annarra mannvirkja sem eru hluti af verkinu, s.s. vega, stíga, slóða, áningarstaða og vatnsrása. Einnig skal leggja jarðstreng og loftlínu Orkubús Vestfjarða í jörð.
Útboðið er auglýst á evrópska efnahagsvæðinu. Tilboð verða opnuð 15. maí n.k.