Laugardagur 12. apríl 2025

Bacillus cereus í próteindrykkjum frá Örnu

Auglýsing

Matvælastofnun varar við neyslu á Arna+ próteindrykkjum með súkkulaðibragði, jarðaberjabragði og kaffibragði vegna þess að Bacillus cereus örvera sem getur valdið matareitrun greindist í vörunni í gæðaeftirliti fyrirtækisins.

Fyrirtækið hefur innkallað vörur með geymsluþolsmerkingu Best fyrir 15.04 í samráði við Matvælastofnun og auk þess tekið vöru með öllum dagsetningum úr sölu í varúðarskyni.

Innköllunin á við eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Arna+
  • Vöruheiti: Próteindrykkur með súkkulaðibragði, Próteindrykkur með jarðaberjabragði og Próteindrykkur með kaffibragði 
  • Framleiðandi: Arna, Hafnargötu 80, Bolungarvík
  • Lotunúmer/Best fyrir: 15.04
  • Geymsluskilyrði: Kælivara
  • Dreifing: Krónan, Bónus, Nettó og Hagkaup, verslanir um allt land. Fjarðarkaup, Melabúðin, Hlíðarkaup Sauðárkróki, Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki, Kaupfélag Vestur húnvetninga Hvammstanga, Kauptún Vopnafirði.

Neytendum er bent á að neyta ekki vörunnar og geta þeir skilað henni gegn endurgreiðslu í þeirri verslun sem hún var keypt. Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu Örnu ehf. í síma 456 5600

Auglýsing

Auglýsing

Nýtt á BB

Auglýsing

Fleiri fréttir