Laugardagur 12. apríl 2025

Áfram hægist á fjölda fullbúinna íbúða

Auglýsing

Húsnæðis og mannvirkjastofnun telur að nú séu samtals 6.348 íbúðir í byggingu um allt land.

Þá eru einnig skráð byggingarleyfi eða samþykkt byggingaráform fyrir 923 íbúðir, en framkvæmdir við þær íbúðir eru ekki hafnar samkvæmt síðustu athugun HMS.

Það sem af er ári hefur verið lokið við byggingu á 814 íbúðum sem er fjölgun um 140 íbúðir á milli mánaða og um 5% fleiri íbúðir heldur en á sama tíma í fyrra.

Fullbúnum íbúðum fjölgar mest á Suðurlandi á milli mánaða en þar fjölgar þeim um nærri helming. Um 60% þeirra íbúða sem hafa verið fullbúnar á árinu eru á höfuðborgarsvæðinu, 14% á Suðurlandi og um 10% á Norðurlandi eystra.

Af íbúðum í byggingu eru um 79% þeirra í fjölbýlishúsum og algengasta stærð þeirra íbúða 80-100 fermetrar að stærð.

Auglýsing

Auglýsing

Nýtt á BB

Auglýsing

Fleiri fréttir