Embætti landlæknis birti í gær endurskoðaða útgáfu opinberra ráðlegginga um mataræði fyrir fullorðna og börn frá tveggja ára aldri. Faghópur á vegum embættisins vann að gerð ráðlegginganna sem byggja á bestu vísindalegu þekkingu á sambandi mataræðis og heilsu en einnig er tekið tillit til matarvenja þjóðarinnar. Aukin áhersla er nú lögð á grænmeti, ávexti og heilkornavörur.
Ráðleggingar um mataræði voru fyrst gefnar út á Íslandi árið 1986 en síðan þá hafa þær verið endurskoðaðar fjórum sinnum. Þessi endurskoðun fylgir ávallt í kjölfar uppfærslu á Norrænum næringarráðleggingum þar sem hópur sérfræðinga fer kerfisbundið yfir rannsóknir á sviði næringar og heilsu.
Í nýjum ráðleggingum er aukin áhersla á grænmeti, ávexti og heilkornavörur. Nýmæli er umfjöllun um orkudrykki sem ekki voru algengir á markaði síðast þegar ráðleggingarnar komu út. Ráðleggingar embættisins í þeim efnum eru skýrar; orkudrykkir eru ekki ætlaðir börnum og ungmennum undir 18 ára.
Minna er ráðlagt af rauðu kjöti en áður og áfram er varað sérstaklega við neyslu unninna kjötvara (s.s. pylsur, bjúgu, naggar, beikon o.s.frv.), hvoru tveggja vegna aukinnar krabbameinsáhættu. Einnig er ráðlagt að takmarka neyslu á matvælum sem innihalda mikið af fitu, salti og sykri og að forðast áfengi, meðal annars vegna krabbameinsvaldandi áhrifa.
Nýju ráðleggingarnar leggja höfuðáherslu á eftirfarandi þætti:
- Njótum fjölbreyttrar fæðu með áherslu á mat úr jurtaríkinu
- Veljum grænmeti, ávexti og ber oft á dag
- Veljum heilkorn, helst þrjá skammta á dag
- Veljum fisk, baunir og linsur oftar en rautt kjöt – takmörkum neyslu á unnum kjötvörum
- Veljum ósætar og fituminni mjólkurvörur daglega
- Veljum fjölbreytta og mjúka fitugjafa
- Takmörkum neyslu á sælgæti, snakki, kökum, kexi og sætum drykkjum
- Minnkum saltið – notum fjölbreytt krydd
- Veljum vatn umfram aðra drykki
- Forðumst áfengi – engin örugg mörk eru til
- Tökum D-vítamín sem bætiefni daglega