Lionsklúbbur Ísafjarðar heldur skemmtun á Hlíf fyrir eldri borgara á morgun , föstudag 14. mars, og á dagskránni er kaffi hlaðborð, tónlistaratriði og bingó. Skemmtunin hefst kl 19:00.
Allir eldri borgarar eru hjartanlega velkomnir.
Lionsklúbburinn vonast til þess að sjá sem flesta.
Klúbburinn hefur boðið upp á skemmtikvöld á Hlíf í áratugi og var eitt fyrsta félagið til að halda þessi kvöld eftir byggingu Hlífar en samsæti kvenfélagsins Hlífar var eldra. Lionsklúbburinn hefur frá upphafi hlúð að verkefnum í bænum og var einn ötulasti stuðningsaðili vegna Bræðratungu heimilisins, og fylgdi þvi eftir með stuðningi við eldri borgara á Elliheimilinu, síðan á Hlíf, Sjúkrahúsinu, Eyri, stuðningi við leikskólana og fleira sem hefur verið Lionsfólki kært. Klúbburinn er ekki stór en hann hefur verðið öflugur I gegnum tíðina.