Hættustig vegna bikblæðinga er í gildi á Bröttubrekku , í gengum Dalina , yfir Svínadal og út Hvolsdal en einnig á veginum yfir Vatnaleið á Snæfellsnesi, undir Hafursfelli og að Heydalsafleggjara. Sama gildir um þjóðveg 1, frá Borgarnesi yfir Holtavörðuheiði í Hrútafjörð.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2025/02/Varla-plass-a-kortinu-fyrir-oll-varudarskiltinNOTA-1200x921-1-1024x786.jpg)
Eins og sjá má á kortinu er mikið af varúðarmerkjum
Starfsfólk Vegagerðarinnar og verktakar vinna nú að því að gera við holur og aðrar skemmdir sem hafa myndast á vegum víða um land eftir umhleypingasamt veður.
Vegfarendur eru beðnir að aka varlega á þessum leiðum en hraði er víða tekinn niður í 70 km/klst. Í aðstæðum sem þessum getur bik og möl festst á dekk. Þeir sem verða fyrir tjóni er bent á að senda inn tjónaskýrslu á mínum síðum á vef Vegagerðarinnar.
Tjónaskylda Vegagerðarinnar er metin í hverju tilviki.