Kílómetragjald verður tekið upp og er hugmyndin að það taki gildi um mitt þetta ár.
Það er í raun óumflýjanlegt og fyrirkomulagið verður kynnt bráðlega sagði Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsmálaráðherra í viðtali við Rikisútvarpið.
Olíugjald verður fellt niður og kílómetragjald kemur í staðinn. Sambærileg áform voru uppi hjá fyrri ríkisstjórn en ekki tókst að klára það mál fyrir kosningar. Daði segir um sanngjarna breytingu að ræða og að hún sé raunar óumflýjanleg.
Frumvarp um kílómetragjald vegna rafmagns- og tengiltvinnbíla var samþykkt á Alþingi í lok árs 2023. Nú stendur til að taka upp kílómetragjald á allan akstur.
Ekki tókst að afgreiða frumvarp um kílómetragjald á öll ökutæki á síðasta þingi en því var ætla að vega upp á móti tekjutapi ríkisins vegna rafvæðingar bílaflota landsmanna og áttu gjöldin að skila sjö milljörðum króna í ríkiskassann.
Daði segir að nýtt fyrirkomulag sé ekki ósvipað því sem áður hefur verið kynnt.