Á Reykhólum var í fyrra hafin smíði á þremur raðhúsum
Nú auglýsir Reykhólahreppur til úthlutunar 4 íbúðir að Hellisbraut 66a – 68b á Reykhólum. Um er að ræða 4 tveggja herbergja íbúðir 54 – 55 m2 að stærð.
Íbúðum verður úthlutað á fundi húsnæðisnefndar í mars. Umsækjendur sæki um á vefsíðu sveitarfélagsins. Þeir sem eiga inni umsókn hjá sveitarfélaginu eru beðnir um að staðfesta þær vegna úthlutunarinnar.
Stefnt er að því að íbúðirnar verði tilbúnar til afhendingar í byrjun apríl.