Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 248 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2024 til 1. febrúar 2025 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 37 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 19 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fækkað um 21 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 59 íbúa.
Í Ísafjarðarbæ fækkaði um 18 og um 3 í Strandabyggð. Í Vesturbyggð fjölgaði um 10 um 6 í Súðavík 4 í Bolungarvík um 1 í Reykhólahreppi 2 í Árneshreppi og 4 í Kaldrananeshreppi.
Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Kjósarhrepps fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2024 um 3,9% en íbúum þar fjölgaði um 12 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Árneshreppi og Kaldraneshreppi eða um 3,4%. Af 62 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 24 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 38 sveitarfélögum.
Íbúum Grindavíkurbæjar fækkar um 214 á tímabilinu eða um 15,2%.