Dragnótabáturinn Haförn ÞH 26 kemur hér að landi á Húsavík.
Það er Uggi fiskverkun ehf. sem á Haförninn og gerir út en fyrirtækið keypti bátinn árið 2010.
Haförn ÞH 26 hét áður Þorsteinn BA 1 frá Patreksfirði og var smíðaður í Garðabær árið 1989.
Báturinn, sem er búinn 450 hestafla aðalvél frá árinu 2001, var lengdur 1993 og mælist 71 brúttótonn (29,9 brúttórúmlestir) að stærð.
Af skipamyndir.com