Vörur í Prís eru 4% til 12% ódýrari en í Bónus

Vörur í Prís eru 4% ódýrari en í Bónus að meðaltali og einstakir vöruflokkar eru allt að 12% ódýrari samkvæmt athugun sem verðlagseftirlit ASÍ framkvæmdi um helgina.

Rúmlega 500 vörur sem seldar eru í báðum verslununum voru bornar saman og var verð jafnt á einni vöru, 25% lægra í Bónus á fjórum vörum og 0,2-48% lægra í Prís á 509 vörum. 

Stærsti verðmunurinn var á stóru heimilisbrauði Myllunnar, sem er tæplega helmingi ódýrara í Prís en í Bónus. Sá mikli munur skýrir hvers vegna verðbil milli Prís og Bónus er að meðaltali mest í flokknum brauð, eða tæp 12%. Aðrir flokkar sem eru umtalsvert ódýrari í Prís en Bónus eru sælgæti og snakk (7,9%), kaffi (7,8%) og gos (6,4%). 

Þær fjórar vörur sem eru ódýrari í Bónus eru allar sósur frá Blå Bland – Aioli, grísk sósa, mexíkósk sósa og bernaise sósa. Þær kostuðu allar 298kr í Bónus en 399kr í Prís.  

DEILA