“Vestfirsk” hryllingsmynd frumsýnd á Íslandi

Kvikmyndin The Damned verður frumsýnd á Íslandi 30. janúar næstkomandi og sýnd í Ísafjarðarbíó 2., 3. og 4. febrúar.

The Damned er fyrsta kvikmynd Þórðar Pálssonar og var myndin tekin upp á Vestfjörðum síðastliðin vetur. Ósvör í Bolungarvík var endurlífgað og lítið kvikmyndaver sett upp á Ísafirði í gömlu hampiðjunni. Meðframleiðandi myndarinnar, Guðmundur Arnar Guðmundsson segir endurgreiðslukerfi menningar- og viðskiptaráðuneytisins hafa skipt sköpun og stuðningur Vestfirðinga og þá sérstaklega bæjarstjórna Bolungarvíkur og Ísafjarðarbæjar, Byggðasafns Vestfjarða, Vestfirskra verktaka og Jóhanns Hannibalssonar í Ósvör hafa verið ómetanlegan.  Íslendingar eru í flestum lykilstörfum The Damned  þrátt fyrir að leikarahópurinn sé erlendur að frátöldum Andreas Sigurðssonar listdansara og meðlimi Hatara.

Í fréttatilkynningu segir að sagan sé innblásin af íslenskri þjóðtrú og fjalli um Evu (Odessa Young), unga ekkju á 19. öld sem þarf að taka erfiða ákvörðun þegar erlent seglskip strandar í firðinum, Á hún og vinnumenn hennar að koma skipbrotsmönnum til bjargar eða vernda eigin líf og öryggi? Þjökuð af samviskubiti og ótta við ómanneskjulega hefnd, neyðist Eva og hennar fólk til að horfast í augu við skelfilegar afleiðingar gjörða sinna

“Veturnir á Íslandi voru erfðir og fátækt mikil, en er hægt að réttlæta athafnir í nafni eigin velferðar?” Þórður segir hugmyndina að sögunni megi rekja til draugasagna sem hann heyrði á uppvaxtarárum, um það “hvernig heimamenn reyndu viljandi að láta skip reka á land. Síðan var allt hirt sem hægt var og passað upp á, að enginn lifði af til að segja frá.  Draugur getur verið andi en einnig hræðilega vera, rotnandi líkami sem leitar þig uppi í myrkrinu. Svona sögur sátu í mér sem krakki og varð uppsprettan að The Damned“ segir Þórður.  “Hugmyndin kviknaði almennilega  einn vetur þegar ég var tímabundið á Ísafirði og lenti í því að snjóa inni. Var alveg fastur og hugsaði hvernig var þetta eiginlega fyrir fólk sem bjó hérna á síðustu öld?”

Lof gagnrýnenda

Gagnrýnendur hafa sérstaklega hrósað kvikmyndinni fyrir hvernig hún fangar bæði fegurð og grimmd íslenskrar náttúru. Kvikmyndatökumaðurinn Eli Arenson (Dýrið) hefur skapað mögnuð myndræn áhrif þar sem snævi þaktar sléttur og kaldar fjallshlíðar verða fullkominn bakgrunnur fyrir þessa drungalegu sögu. The Damned er framleidd af Elation og meðframleidd af hinu íslenska Join Motion Pictures.

DEILA