Verkefnisstjórn, hefur skilað af sér tillögum um uppbyggingu að Hrauni í Öxnadal, fæðingarstað Jónasar Hallgrímssonar.
Tillögurnar ganga út á metnaðarfulla uppbyggingu á staðnum þar sem aðgengi að fólkvangi og náttúru staðarins er tryggt og gert ráð fyrir nýstárlegri menningarmiðlun, m.a. um framlag Jónasar til íslenskrar menningar. Skýrsluna má nálgast hér.
Alþingi samþykkti árið 2017 að stuðla að uppbyggingu að Hrauni til að heiðra minningu þjóðskáldsins. Jónas er óumdeilanlega eitt af ástsælustu skáldum Íslendinga og er framlag hans til menningararfsins ómetanlegt. Þannig samþykkti ríkisstjórn Íslands árið 1995 að 16. nóvember, fæðingardagur Jónasar, yrði dagur íslenskrar tungu.
Fyrrnefnd verkefnisstjórn, sem skipuð var af þáverandi menningar- og viðskiptaráðherra, skilaði tillögum sínum að uppbyggingu að Hrauni í desember síðastliðnum en í hópnum sátum fulltrúar Menningarfélagsins Hrauns í Öxnadal, sveitarfélagsins Hörgársveitar auk sérfræðinga ráðuneyta. Megintillögur verkefnisstjórnarinnar eru fjórþættar en miða að því að jörðin Hraun sé skipulögð sem ein heild þar sem bæjarstæðið, fólkvangurinn og náttúran alltumlykjandi myndi vettvang fræðslu, útivistar og menningarviðburða.
Við vinnu starfshópsins var leitað til arkitektastofunnar Kollgátu varðandi frumhönnun á gestastofu á staðnum. Þegar nýr ráðherra menningar, nýsköpunar og háskóla tók við embætti gerði hann þegar grein fyrir tengslum sínum við arkitektastofuna og að hann hefði tilkynnt meðeigendum sínum að stofan gæti ekki unnið frekar að þessu verkefni.