Vegagerðin auglýsir í dag eftir tilboðum í endurbyggingu á um 6,6 km kafla á Steinadalsvegi í Dalabyggð. Um er að ræða endurbætur á núverandi vegi ásamt vegtengingum og frágangi frá Vestfjarðavegi að Ólafsdal. Steinadalsheiði liggur milli Gilsfjarðar og Kollafjarðar í Strandasýslu.
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. ágúst 2026.
Útboðsgögn eru aðgengileg í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 20. janúar 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. febrúar 2025.