Slysasleppingar Arctic Fish : rannsókn lokið – málið fellt niður

Frá laxeldi í Patreksfirði.
Frá laxeldi í Patreksfirði.

Rannsókn Lögreglustjórans á Vestfjörðum á slysasleppingum eldislax í Patreksfirði í ágúst 2023 lauk í lok árs. Í framhaldinu var í byrjun janúar 2025 tekin ákvörðun um að fella niður málið með vísan til 145. gr. sakamálalaganna, þ.e. á þeim grunni að ekki væru komnar fram upplýsingar í málinu sem væru nægilegar  eða líklegar til sakfellis.

Þetta staðfestir Helgi Jensson, lögreglustjóri á Vestfjörðum í svari við fyrirspurn Bæjarins besta.

Til rannsóknar var Stein Ove Tveiten, forstjóri Arctic Fish.

Eftir atburðinn hóf lögreglustjórinn Á Vestfjörðum rannsókn á slysasleppingunni og lauk henni með ákvörðun 19. desember 2023 um að hætta rannsókn málsins.

Sú ákvörðun var kærð til Ríkissaksóknaraembættisins. Voru kærendur alls 23, m.a. Matvælastofnun, einstaklingar, veiðifélög og söngkonan Björk Guðmundsdóttir.

Í apríl 2024 felldi Ríkissaksóknaraembættið ákvörðun lögreglustjórans úr gildi og fól honum að fullrannsaka málið og taka ákvörðun á grundvelli 145. greinar laganna að henni lokinni.

Rannsóknin laut að því hvort forstjórinn bæri refsiábyrgð á því að fiskur slapp úr eldiskvínni með því að vanrækja að til staðar væri nauðsynlegur umbúnaður við fiskeldið.

DEILA