Skíðafélag Ísfirðinga með fulltrúa á HM unglinga og á Vetrarólympíuhátíð æskunnar

Ástmar, Grétar og Eyþór á æfingu í Naustahvilft. Mynd: Skíðafélag Ísfirðinga.

Þrír iðkendur SFÍ hafa verið valdir til þess að keppa á aðþjóðlegum mótum í næsta mánuði. Frá þessu er greint á vefsíðu Skíðafélags Ísfirðinga.

Grétar Smári Samúelson og Ástmar Helgi Kristinson munu keppa fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti unglinga í skíðagöngu (JWSC) sem fer fram á Ítalíu dagana 3.-9. febrúar. Með þeim í för verður annar SFÍ-ari, Guðmundur Rafn Kristjánsson, Muggur, sem mun fara með hópnum og sjá til þess að keppendurnir hafi fyrsta flokks skíði og rennsli.

Þá fer Eyþór Freyr Árnason með hópi íslenskra skíðakrakka á Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar (EYOF) sem fram fer Í Georgíu dagana 8.-17. febrúar. Til gamans má nefna að einn af þjálfurum hópsins er gamall SFÍ-ari, Ólafur Thorlacius Árnason.

DEILA