Skafa á snjó af bílum áður en ekið er af stað

Borið hefur á því undanfarið að ökumenn skafa ekki snjó af ljósum bíla sinna en með slíku háttalagi setja ökumenn sjálfa sig og aðra vegfarendur í talsverða hættu.

Að skafa snjó og hrím af rúðum og ljósum bílsins áður en lagt er af stað út í umferðina á að vera eins sjálfsagt eins og að setja á sig bílbelti.

Einnig er mikilvægt að hreinsa snjó vel af bíln­um en það dug­ar ekki aðeins að hreinsa af rúðum, spegl­um og ljós­um held­ur er einnig mik­il­vægt að snjór sé hreinsaður af þaki bíls­ins svo hann renni ekki skyndi­lega fram á framrúðuna og byrgi öku­manni sýn. Slíkt get­ur skapað mikla hættu.

DEILA