Samgöngustofa hnippir í sjómenn

Nú fá sjómenn stafrænt hnipp í pósthólfið sitt á Ísland.is.

Í því felst að þremur mánuðum áður en gildistími námskeiða sjómanns (öryggisfræðsla smábáta og grunnöryggisfræðslunámskeið) rennur út fær sjómaður póst gegnum Ísland.is um að gera ráðstafanir.

Á næstu vikum verður hnippið nýtt fyrir fleiri þætti í þágu sjómanna, t.d. í tengslum við önnur námskeið hjá Slysavarnaskóla sjómanna, atvinnuskírteini, sjóferðabækur, sjómannalæknisvottorð og skemmtibátaskírteini.

Allir einstaklingar sem fá útgefna kennitölu og allir lögaðilar sem skráðir eru í fyrirtækjaskrá hafa aðgang að sínu eigin stafræna pósthólfi á Ísland.is.

Hægt er að stilla pósthólfið þannig að það sendi hnipp til eiganda þess þegar póstur hefur borist.

DEILA