Safnahúsið á Ísafirði fær nýjan vef

Safnahúsið hefur tekið í notkun nýjan vef, eftir umtalsverðan undirbúning.

Á þeim tíu árum sem liðin eru frá því að eldri vefur safnsins var tekinn í notkun hefur ýmislegt breyst bæði í tæknimálum almennt og í starfi safnanna.

Vonir standa til þess að með þessum nýja vef verði hægt að miðla upplýsingum um starfsemi safnanna og safnkost þeirra með enn betri hætti en hingað til. Vefurinn er sérstaklega þróaður fyrir Safnahúsið og býður meðal annars upp á möguleika fyrir söfnin til að tengja innri skráningarkerfi beint við miðlun á vefnum í framtíðinni.

Forritun og rekstur vefsins er unnin innanhúss, samhliða starfi við stafræna miðlun á vegum einstakra safna. Hönnun vefsins byggir á ráðgjöf og grunni frá Mikaro ehf.

Safnahúsið á Eyrartúni, gamla sjúkrahúsið, þykir með fallegri byggingum landsins. Það var byggt á árunum 1924–1925 eftir teikningum Guðjóns Samúels­sonar, þáverandi húsameistara ríkisins, og vígt við hátíðlega athöfn 17. júní 1925. Þjónaði það sem sjúkrahús til ársins 1989 þegar nýtt sjúkrahús var tekið í notkun. Frá árinu 2003 hefur það gegnt hlutverki menningar­húss og hafa fjögur söfn þar aðsetur: Bókasafnið, Skjalasafnið, Ljósmyndasafnið og Listasafn Ísafjarðar.
DEILA