Matvælastofnun varar við neyslu á nokkrum framleiðslulotum af Til hamingju döðlum sem Nathan og Olsen flytur inn vegna þess að varan stenst ekki gæðakröfur. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna.
Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vörumerki: Til hamingju
- Vöruheiti: Döðlur saxaðar
- Geymsluþol: Best fyrir lok: 06.2025, 08.2025, 10.2025
- Strikamerki: 5690595095496
- Nettómagn: 250 g
- Framleitt fyrir: Nathan & Olsen, Klettagörðum 19, 104 Reykjavík
- Framleiðsluland: Bretland
- Innflytjandinn: Nathan & Olsen, Klettagörðum 19, 104 Reykjavík.
- Dreifing: Aðföng (Bónus og Hagkaup), Verslunin Einar Ólafsson, Fjarðarkaup, Heimkaup, Hlíðarkaup, Hraðkaup Hellisandi, Kaupfélag Skagfirðinga, Kauptún, Krónan, Bláfell, Melabúðin, Smáalind, Verslunin Álfheimar, Verslunin Kassinn.
Þá varar Matvælastofnun neytendur við einni framleiðslulotu af Mild Chunky Salsa sósu frá Old Fashioned Cheese (OFC) sem Aðföng ehf. flytur inn vegna glerbrots sem fannst í einni krukku. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna.
Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Old Fashioned Cheese (OFC)
- Vöruheiti: Mild Chunky Salsa
- Geymsluþol: Best fyrir 16-02-2025 ( EXP 16 FEB 2025 )
- Lotunúmer: MCSP 24-047 001
- Strikamerki: 048707444215 Nettómagn: 425 g
- Framleiðandi: Old Fashioned Foods, Inc. Framleiðsluland: Bandaríkin
- Innflytjandi: Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík.
- Dreifing: Verslanir Hagkaupa og Bónuss um land allt.
Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki heldur farga eða fá endurgreitt í verslun þar sem hún var keypt.