Landsnet býður í vinnustofur valkostagreiningar vegna tengingu Hvalárvirkjunar, tvær vinnustofur verða í boði og eru þær á eftirfarandi dagsetningum og staðsetningum:
- 28. janúar kl. 16-19 – Hótel Laugarhóll – Þessi vinnustofa er hugsuð fyrir verkefnaráð en hún verður einnig opin almenningi sem og landeigendum og hagaðilum á svæðinu sem kjósa að mæta þangað.
- Léttar veitingar verða í boði á meðan vinnustofan er í gangi og verður boðið upp á kvöldmat að vinnustofu lokinni.
- 30. janúar kl. 17-20 – Hótel Nordica – Þessi vinnustofa er hugsuð fyrir landeigendur en verður einnig opin fyrir þau sem eru í verkefnaráði og sjá sér ekki fært að mæta á Hótel Laugarhól.
- Léttar veitingar verða í boði á meðan vinnustofan er í gangi.
Drög að dagskrá er eftirfarandi:
- Framsaga frá Landsneti og VSÓ Ráðgjöf
- Markmið framkvæmdar – upprifjun
- Upprifjun frá SVÓT greiningu 2019 – helstu niðurstöður
- Tilgangur valkostagreiningar og tenging við umhverfismatsferlið
- Samantekt í lokin og næstu skref
Þar sem að þetta eru vinnustofur verður ekki boðið upp á fjarfund.
Þeir sem hyggjast mæta skulu skrá sig á heimasíðu Landsnets.